Það er sko alveg óhætt að segja að hún Dimbí mín er dóttir pabba síns(Jóa).
Hún var hjá lækninum í gær og litla dúllan mín er með ónýtt hné hægra meginn alveg eins og pabbi. Svo er hún líka rosalega mikið fyrir að borða allt og hafa það helst sem ógeðslegast :P alveg eins og pabbi sinn hehe..

Þau eru nú bæði samt afskaplega mikil krútt svona ónýt og sæt hehe..

Þessi fallega mynd af Dímu er tekinn í gær eftir að hún kom heim úr mjaðmamyndatöku, hún var svæfð þannig að hún var alveg út á túni grey dýrið. Held að ég hafi sjaldan hlegið jafn mikið, hún var alveg rugl fyndinn. Þegar ég kom og sótti hana vissi hún ekkert hvað sneri upp eða niður og urraði bara á mig :) Veit ekki alveg hvað hún var að pæla. En í dag er hún súper hress. Og slæma hnéð hennar mun ekkert hrjá henni og en ef það færi að gera það þá fer hún bara í aðgerð og verður good as new.. Alveg eins og pabbinn.

Annars er ég ennþá að berjast við þessa vibba flensu og ég ætla að halda kjurru fyrir alveg þangað til við förum til Svíþjóðar í næstu viku, ekki séns að ég ætli að vera veik þar þá verða allir hræddir við mig og halda að ég sé með miss piggy flensuna.

Well ég ætla að halda áfram að lúlla..

0 Comments:

Post a Comment



Newer Post Older Post Home