Loksins tegar eg er orðin gód þá lendi ég aftur inni á spítala. Er búin að vera í smá ping pong leik í dag á milli deilda en tad fer vonandi ad komast niðurstaða í þad hver þeirra vill halda mér



Jæja ég held að ég sé búin að finna mér íþróttagrein sem ég geti náð miklum frama í, Skotfimi.
Það þarf ekki að vera neitt sérstaklega vel á sig kominn líkamlega, maður þarf ekki að vera katt liðugur og það eru engar leiðindaæfingar sem maður VERÐUR að mæta á, í staðinn eru bara fastir æfingartímar og ég mæti bara þegar ég vill mæta og svo plús það þá eru engar stelpur að keppa í skeet og aðeins 1 eða 2 í loftriffil skotfimi. þannig að ég lendi þá bara alltaf í góðum sætum :P híhí
plús að þetta er alveg ógeðslega skemmtilegt.



Ég er með smá NYC fever núna langar alveg rosalega að fara. Langar eiginlega bara að flytja þangað þó að ég þyrfti að búa í holu og vinna á McDonalds :)
Bara til að geta farið og horft á útsýnið frá battery park og margt fleira :P
Þannig að ef þið finnið mig ekki einn daginn þá vitiði hvert ég hef farið.
Annars er ég farinn að mæta í vinnuna aftur, og er að vinna í því að byrja aftur að vinna. Það er bara mjög erfitt.
Einn dagur í einu!!

Jey við erum að fara til dk í 3 vikur í sumar.
Mamma og pabbi sjá um bústaðinn og við reddum flugi og bíl.
Við vorum að panta flugið núna áðan og pöntuðum í leiðinni Volvo C30.
Það verður crazy gaman :)
Annars er konudagurinn í dag, og Jói er ekki búin að vera að standa sig :P
En það bætist vonandi úr því á eftir híhí...
Annars er ég ennþá veik belive it or not :(
Vona að ég fari að drullast til að hætta þessum aumingja skap þetta er orðið meira en mánuður af kvefi, slappleika og örðum skemmtileg heitum.


Jæja ég ætla að koma með sjúkrasöguna sem endar mjög skemmtilega.
Á föstudaginn fyrir viku fer ég upp á bráðamóttöku í Fossvogi, þar var ég skoðuð og mæld og tekinn allskona sýni, læknirinn þar vildi endilega senda mig upp á kvennadeild í frekari skoðun þannig að hann ætlaði að hafa samband við kvennadeildina á laugardeginum og hringja svo í mig. Kvennadeildin vildi ekki hitta mig, þannig að læknirinn uppi á bráðamóttöku sagði mér bara að koma aftur ef verkinir versnuðu og/eða ég fengi hita. Á laugardagskvöldinu þá fékk ég 39 stiga hita þannig að ég tók taxara upp á spítala því allir höfðu farið eitthvað að djamma. Ég fékk að bíða í 2 og hálfan tíma eftir að komast inn og svo var ekki farið að sinna mér fyrr en svona 5 um nóttina, þá voru tekin fleiri sýni og reynt að ákveða hvað ætti að gera við mig. 12 tímum seinna var ég svo lögð inn á meltinga- og smitsjúkdómadeild og þar átti að rannsaka mig frekar, fór í ristilspeglun sem er ekki nice og fleiri rannsóknir. Svo á þriðjudaginn þá höfðu þau bara ekki fundið neitt að mér :) þannig að þau vildu senda mig til kvennsjúkdómlæknis, þannig að deildarlæknirinn hafði samband við lækninn minn og ég fór til hans í gær og vitiði hvað ef kvennadeildinn hefði viljað hitta mig þarna á laugardaginn þá hefði það getað sparað fullt af peningum því að það eina sem var að mér var að það hafði blætt inn á vinstri eggjastokkinn hjá mér og það var að valda hita og verkjum :P
þannig að bara in your face kvennadeild :)


Jæja tá er búid ad leggja mig inn á spítalann í Fossvogi. Búid ad senda mig í allskonar rannsóknir og ekkert komid út úr þeim ennþá. Þessi mynd er tekinn af mér tegar ég var ad drekka go lightly sem er eins og þid sjáid algjör vidbjódur :-(

Jæja í staðin fyrir að eyða föstudagskvöldi á fyllerí niðri í bæ eyddi ég því á aðeins öðruvísi stað, þeir eru samt mjög svipaðir það er fullt fólk þar, löggur, slagsmál og fullt fullt af dópi.. :P
Já ég fór niður á spítala í gær því að mallinn er ennþá að angra mig, ekki mikið gert þar fékk reyndar 1 ltr. af vökva í æð sem var mjög gott því að ég er orðinn soldið þurr, svo skilaði ég allskonar sýnum og kl hálf 5 í nótt mátti ég fara heim. Ekki það að þetta vandamál mitt hafi verið leyst. Átti að senda mig niður á kvennadeild en þeir vildu ekki hitta mig :( þannig að ég held bara áfram að taka verkjalyf og vona að ég meiki það á þorrablótið í kvöld.
Annars var þetta mjög spennandi upplyfun fyrir Jóa sem gat ekki látið rúmið mitt í friði ég held að hann hefði á endanum brotið það saman hefði ég leyft honum að fikta lengur. Og saltvatns poki hefur örugglega aldrei verið svona vinsæll :)
Jæja litli kjúklingurinn sem enginn veit hvað er að (örugglega bara ýmindunar veiki) ætlar að halda áfram að lúlla eftir langa nótt..




Jæja þá er það komið á hreint ég fékk vinnuna :)
Byrja í byrjun mars eða loka feb.
Annað í fréttum að ég gerðist félagsmaður í SR í dag
skotfélagi Reykjavíkur.

Í gær ákvað ég að taka á því, Jói dreif mig í sund og sagði að ég fengi ekki að fara upp úr fyrr en ég væri búin að synda 8 ferðir. Ég var alveg vá heilar 8 ferðir það mun drepa mig not !!
En eftir 4 ferðir var ég búin á því, ég get ekki trúað því hvað ég er í lélegu formi. Mjög sorglegt en ég kláraði mína 200 m og fór svo að chilla í heita pottinum. Jói er greynilega með mig í einhverju heilsuátaki því hann þykist ætla að láta mig hlaupa 3 km á eftir við sjáum svo bara hvernig það fer, ef ég blogga ekki framar hérna þá vitiði hvernig það fór :P
En annars er helgin framundan og bjartir tímar :P fer austur á sunnudaginn að kaupa miða á þorrablótið sem verður stuð..

Newer Posts Older Posts Home