Ég á ennþá smá í land með að fá andlitið mitt alveg aftur en það er að koma, ég er líka farinn að losna við bjug á höndunum og maganum þannig að eg fer að vera aftur ég sjálf reyndar 20 kg þyngri en það er bara gaman hehe..

Í gær fór ég á aðalfund smáhundadeildarinnar þar sem ég var valinn nýi tengiliðurinn fyrir Poodle.
Það verður spennandi verkefni :)

Annars er allt rólegt Díma hætt að lóða loksins reyndar stóð þetta stutt yfir, Snædís og Díma eru orðnir bestu vinir voða fjör alla daga.



Við Jói fórum í matarboð í kvöld sem er ekki frásögu færandi nema hvað að ég er á hveitilausu fæði.

Ég bað Jóa um að hringja í Hildi sem var að halda boðið og láta hana vita, þetta var minnir mig í byrjun síðustu viku. Nei nei hann gerir það ekkert svo fer ég að spurja hann út í það á leiðinni í boðið og þá hringir hann í Hildi sem hafði búið til Pizzu.. Þannig að ég fékk kál og papriku í matinn :S

Gott að eiga hugulsaman mann!

Annars er ég svo rosalega heppinn að ég er farinn að verða verri og verri aftur þannig að ég bíð spennt eftir næstu spítala ferð... En í augnablikinu þarf ég bara að bíða róleg og sjá til bíða bíða bíða...

Ég er ekkert rosalega happy með þetta lengur því að það er ekkert að gera nein kraftaverk fyrir mig, ég er búin að fá Remicade þrisvar og fer í fjórða skiptið í apríl ég finn engann dramatískan mun sterarnir hjálpa en þeir eru bölvað eitur og frekar færi ég í aðgerð..

Jæja ég loksins búin að koma www.poodle.is í loftið. Eftir að ég fann virkilega einfalt kerfi til að búa hana til í hehe. ég er ekki nógu góð í þessu heimasíður dæmi en synthasite.com er snilld. Hún er reyndar bara á ensku í augnablikinu en ég er að vinna í íslensku útgáfunni. Fannst bara sniðugra að hafa hana á ensku fyrst þar sem að ég á nokkra vini erlendis sem fylgjast með hundunum mínum :)

Um helgina verðum við Charly svo í Garðheimum að kynna Standard Poodle milli 12-17 lau og sun..

Ég er ennþá að hanga yfir litla krílinu hennar Stebbu á daginn mega fjör..

Svo er það komið á hreint að við Jói erum á leiðinni til Svíþjóðar í Maí erum að fara að horfa á Obbu systir Jóa keppa með U-18 landsliðinu í körfu. eftir að það er búið þá förum við að heimsækja Lottu sem er að rækta Poodle hunda, hún er með www.huffish.se bara flottir hundar..

Aðal áhugamálið okkar Jóa er að vera nurlarar :P

Við erum búin að vera mjög dugleg síðasta árið losuðum okkur við VISA og fengum okkur fyrirfram greitt kort, stofnuðum vaxtareikning til að safna peningum á hehe.
Seldum bílinn og fengum okkur annan ódýrari og svo fengum við Gula gamla gefins þannig að við eigum óvart tvo bíla. Við kaupum okkur aldrei neitt nema að hafa efni á því og okkur vanti það. Jú auðvitað leyfum við okkur skemmtilega hluti en það eru samt alveg takmörk fyrir því hvað við leyfum okkur. Jói hefur t.d. ótakmarkað budget þegar það kemur að bílum aðal áhugamáli hans og ég hef ótakmarkað budget þegar það kemur að hundum mínu áhugamáli..

Við eyðum smá tíma í að finna bestu verðinn áður en við kaupum eitthvað. t.d. notum við www.gsmbensin.is en við erum með fyrirfram greitt bensín kort frá orkunni sem við sitjum 20 þús kr inn á hver mánaðarmót en það dugar okkur á báða bílana út mánuðinn.
Við höldum líka eyðsludagbók yfir báða bílana þannig tökum við fyrr eftir því ef bílanir eru eitthvað veikir eða við ekki að standa okkur í spar akstrinum..

Ég versla líka öll lyfin mín í Lyfjaveri þar sem þau eru töluvert ódýrari.

Við leggjum alltaf frá pening í hverjum mánuði til að sitja inn á reikninginn okkar.

Við reynum að borða eins lítið af skyndibita og við getum. Fáum okkur reyndar alltaf mat þegar við förum í IKEA enda of ódýrt til að sleppa. Einnig fáum við okkur bara einn skammt en ekki tvo þegar við förum á Krua Thai enda verðum við bæði pakksödd og kostar 1350 kr minna hehe..

Við sögðum líka upp kaskó tryggingunni á Hondunni enda er hún orðinn 10 ára og kaskó kostaði 40 þús á ári og svo 70 þús ef maður lenti í slysi. segi bara 7-9-13 og vona að það gerist ekki..

Við notum líka öll tilboð sem við komust yfir eins og 2 fyrir 1 í bíó og svo framvegis. Erum líka í einkaklúbbnum og FÍB sem marg borgar sig ef maður á gamla bíla. FÍB veitir líka mikinn afslátt af öllu sem við kemur bílum.

Við kaupum líka ódýran hundamat samt án þess að reyna að láta það bitna á gæðunum.

Við erum ekki áskrifendur af neinum óþarfa eins og stöð 2 eða einhverju svoleiðis rugli. Ef við viljum einhver blöð þá gerumst við áskrifendur í gegnum netið og fáum blöðin send heim, miklu ódýrara heldur en að kaupa þau einu sinni í mánuði í dótabúð.

Við notum Ebay og amazon mikið stundum borgar það sig og stundum ekki, sérstaklega þegar maður er að leita að einhverjum ákveðnum hlut sem er kannski rándýr hérna heima..

Auðvitað verslum við mat í Bónus og förum bara á njálgbarinn(nammibar) á laugardögum.

Við erum líka með alla föstu reikningana okkar í greiðsluþjónustu þannig að það sé alltaf sama upphæðinn sem fer í þetta á hverjum mánuði þannig höfum við meiri pening á milli handana heldur en að fá t.d. 200 þús trygginga reikning einu sinni á ári.

Ég skoða líka www.msn.com rosalega mikið þar eru oft mjög góð ráð hvernig maður getur lifað sparsamlega. Ef þú vilt vera extreme þá geturu googlað frugal living

Við Jói byrjuðum á þessu í Jan 2008 fyrir kreppu þannig að við finnum ekkert fyrir kreppunni hehe.. Við gerðum þetta að áhugamáli og okkur finnst mjög gaman að leita að bestu tilboðunum og finna nýjar leiðir til að spara pening eða eignast meiri pening. Seljum hluti sem við þurfum ekki gott að auglýsa á mbl.is eða barnalandi.is

Einnig þegar ég fer að versla föt og finn dýra flík sem mig langar í þá máta ég hana og læt svo taka hana frá fyrir mig og sef á þessu ef mig langar ennþá jafn mikið í hana daginn eftir þá fer ég og kaupi hana..

Svo langar mig að nefna mestu snilld ever það er Mcdonalds og ísinn þar Mcflurry kostar 250 kr en ég held að meðal bragðarefurinn sé eitthvað um 500 kr mikill sparnaður að fá sér bara Flurry.. sem er alveg geggjað góður líka..

Það er líka gott að taka út pening eða borga allt með fyrirfram greidda VISA, hver færsla af Debet kostar 13 kr.

Drekka mikið af vatni :)

Fara út að hlaupa eða í sund í staðinn fyrir að fara í ræktina.

Well þetta er það eina sem mér dettur í hug í augnablikinu.

Ég er núna alla daga uppi í mosó að húsvenja litla gerpið hana Snædísi.
Það gengur bara rosa vel enginn slys inni ennþá og áðan þá settist hún við hurðina þegar henni langaði út.

Charly og Díma eru bara hress en sakna mín alveg rosalega mikið enda get ég ekki haft þau með mér upp í mosó þar sem Snædís er ekki full bólusett..

Svo er ég að fara í Járngjöf á morgun enda er alveg að líða yfir mig suma daga.

Svo er ég að vinna á fullu í smá leyndói og vonandi rætist úr því :)

Löng og mjög skemmtileg helgi að baki. Var á hundasýningu alla helgina að sýna Charly og Sollý litlu krútt bombu..

Charly stóð sig eins og hetja og fékk íslenskt meistara stig og Alþjóðlegt meistarstig líka þá vantar okkur bara tvö íslensk og 3 alþjóðleg í viðbót..
Hann endaði svo í 4.sæti í tegundarhóp 9 en það voru 18 hundar að keppa með honum. Gaman að það gengi svona vel á fyrstu sýningunni okkar saman :)

Sollý var líka æði en hún fékk Very good og mjög góða umsögn en daman er aðeins of lítil.

Svo fór ég á fyrirlestur hjá Frank Kane í kvöld sem var BIS dómari sýningarinnar mjög athyglisverður fyrirlestur og það er ekkert smá gaman að vera komin aftur í hundana eftir langa pásu..

Hlakka líka til að geta farið að sýna Dímu aftur vonandi er hún búin að þroskast aðeins, verður gaman að sjá hvernig henni gengur ég ætla líka að leika mér við að klippa hana sjálf, var að panta skæri í síðustu viku..

Í dag var ég svo að dúllast með Snædísi en ég verð hjá henni núna alla daga fram í apríl á meðan það er verið að húsvenja hana.. Fyrir þá sem ekki vita það þá er Snædís Bichon Frise hvolpurinn hennar Stebbu systir..

Annars er allt gott að frétta af öllum Jói að læra á fullu og ég að læra að vera sjálfstæð, algjör hetja get verið ein heima og keyrt út um allt, það þýðir að ég sé orðinn góð af kvíðanum :)
En maginn ég ætla nú ekki einu sinni að tala um hann.
Stera kinnarnar eru að minka sem betur fer, ég er reyndar mjög lág í járni þannig að ég fæ 5 poka :) en það er ekkert sem er ekki hægt að laga.

Ég er líka farinn að prufa nýtt verkjalyf eftir að ég fékk ofnæmi fyrir hinu og það virðist virka vel ég er ekkert sljó en verkjalaus sem er mjög gott..

En svo við nefnum magann kannski smá þá er voða misjöfn eftir dögum, klósett ferðirnar virðast vera að aukast aftur og ennþá blæðir endalaust :S Ég er líka byrjuð að finna fyrir mjög skemmtilegu einkenni sem er að koma aftur en það er að þurfa að fara á klósettið eftir hverja máltíð og finna til þegar ég borða. Ég finn líka til í liðamótunum núna eru það helst ökklarnir sem eru að pirra mig og svo blessuðu augun mín alltaf rauð og þrútinn :(

Þetta er bara afskaplega þreytandi glíma við þetta drasl og ég skil ekki hvað þetta tekur langan tíma, ég er samt betur fer að fá smá þrótt og styrk þó að ég sé járnlaus.

Þetta kemur vonandi allt að lokum, núna get ég bara látið mig hlakka til næstu sýningar sem er í Júni..

Annars erum við Díma og Charly farinn að lúlla..

Newer Posts Older Posts Home