Díma og Charly eignuðust 6 svarta stráka í gær.
Allt gékk eins og í sögu og Díma er frábær mamma.

Þetta vekur reyndar upp leiðinlegar minningar fyrir mig og ég vona svo innilega að það gangi betur hjá Dímu heldur en hjá Theu minni.

meiri upplýsingar á www.poodle.is

Vaka er núna búin að vera hjá okkur í 3 vikur og gengur vel með hana hún og Charly eru bestu vinir og leika sér allan dagin úti í garði.

Heilsan mín er orðin betri en ég er samt ekki 100% en ég vona að það komi með tímanum.

Er byrjuð á nýju lyfi sem heitir HUMIRA afþví að ég fékk bráðaofnæmi fyrir Remicade.
Held að Humira sé ekki farið að virka strax en ég fékk fyrsta skammtinn minn um miðjan des. Ég sprauta mig sjálf núna aðar hverja viku með sprautu penna.
Mér finnst það bara gaman er ekki hrædd við sprautur.

Ég er sem betur fer byrjuð að léttast og orðin núna 64.5 kg sem er nokkuð gott miðað við þessi 72 kg sem ég var orðinn.
En á samt langt í land ef ég ætla að ná fyrir stera þyngdinni minni :P en ég held ég láti það eiga sig.

Newer Posts Older Posts Home