Við ákváðum í vetur að labba einu sinni í viku upp á Esjuna, þannig að það var kominn tími til að byrja enda er 1.júni á föstudaginn :)
Við ákváðum að drifa okkur af stað kl 2 og ferðin upp og niður tók tvo tíma. Stefnan fyrir haustið er að fara upp og niður á innan við klst, ég veit að Jói getur það léttilega en það er ekki hægt að segja sömu sögu um mig :P á meðan Jói var hlaupandi eins og hauslaus hæna út um allt, þá rétt náði ég í rassgatið á honum móð og másandi.
Ekki hægt að segja að formið sé upp á marga fiska.
En til þess er nú leikurinn gerður, koma mér í betra form.
Núna er ég líka kominn með svo góða umbun í lok hverjar ferðar, hoppa beint í pottinn þegar ég kem heim og hita vöðvana.
Þetta hefur verið alveg mögnuð löng helgi á laugardaginn fórum við í partý til Heigga sem var algjör snilld. Í gær fórum við svo loksins að skjóta :) og ég verð að segja að byssan mín var alveg að standast væntingar, þarf bara að láta stytta á henni skaftið svo að hún passi mér betur. Þetta var rosa gaman enda búin að bíða eftir því að prufa hana síðan ég fékk hana í Janúar að mig minnir.
Ég er búin að vera að hjóla líka til að koma mér í form hjólaði 24 km um helgina, þannig að ég er svona nett þreytt núna og er bara að bíða eftir því að kl verði 10 svo að ég geti farið að lúlla :)



Jæja þá er ég búin að sækja um í Háskólanum á Akureyri í viðskiptafræði eins og restin af íslandi :P
Svo er bara að bíða og sjá hvort að ég kemst inn :)
Við Jói erum líka að fara að sækja um íbúð á stúdentagörðunum en það eru víst ekki miklar líkur á að við fáum það því að við erum ekki bæði í HÍ.
Svo er bara 1 og hálfur mánuður í DK.
Það er bara allt að gerast..
Annars er Despó og Grey´s búin þetta árið þannig að ég fann mér nýjan þátt, Dirt!
Með Courteney Cox úr Friends þeir eru alveg ágætir ég er allavega búin að horfa á fimm þætti :P
Svo er það bara búðar djamm hjá Heigga í kvöld, og þó að ég sé ekki ennþá í búðinni þá er mér samt boðið því að það vantar einhvern til að tala við ísskápinn :P

Djöfull væri ég til í að vera akkurat þarna núna!
Sem betur fer er þriggja daga helgi framundan þannig að kannski nýtir maður bara tíman til að slappa af í pottinum.
Hann er allaveg blár eins og sjórinn þarna :P
Annars er það bara heilsuhælið í Hveragerði sem er á óskalistanum.



Loksins er potturinn kominn, ég var ekki lengi ad hoppa út í.

Þá er maður kominn heim og það er ekki beinlínis gott veður sem tekur á móti manni, bara slabb og kuldi burr..
En ég er samt rosa glöð að vera komin heim var alveg að gefast upp á þessu labbi, það er svo erfitt að elta Jóa þegar hann hoppar á milli búða(já, hann verslaði meira en ég).
Annars var þetta voða nodó komast í smá hita og slappa af í nokkra daga akkurtat það sem maður þurfti líka gott fyrir svona flughrædda manneskju eins og mig að komast í flug, svo ég detti ekki úr þjálfun.
Annars lenti systir hans Jóa í 4.sæti sem sagt 91 stelpurnar en 91 strákarnir urðu norðurlandameistarar.
Svo er ég með alveg glimrandi góðar fréttir :D
Ég var að fá niðurstöðurnar úr krabbameins rannsókninni og það er bara allt farið :D
Þannig að ég get verið alveg slök vonandi, fer bara í venjulega krabbaskoðun Nóvember og ef ekkert fynnst þá heldur þá er ég bara kominn með grænt ljós á að fara bara einu sinni á ári í skoðun.
Algjör snilld fynnst eins og það hafi verið tekið af mér þungt farg með því að losna við þetta :)

Annars er það ekki meira í bili ;)


Sá þennan sæta snígló á leiðinni heim ádan. Þad er búið að vera gott veður hérna í svíþjóð nema í dag þá byrjaði að rigna. Við erum búin að versla alveg helling og mastera samgöngurnar hérna stokkhólmi. Annars hefur liðið hennar Obbu ekki verið að gera góða hluti en þær ná samt ad keppa um 3.sætið við finnland.


Ferdin gékk rosalega vel eg var ekkert flughrædd :p núna erum vid bara ad sóla okkur og ad bída eftir ad herbergid okkar losni.

Jæja á morgun er það Svíþjóð og ég er orðin svona nett stressuð fyrir flugið eins og alltaf. En ég jafna mig :)
Annars segi ég bara allt gott, er búin að vera slæm í maganum í nokkra daga og hringdi því í doksan minn og hann sagði mér orðrétt að drekka rauðvín og fá mér kiwi hahahahah...
Það verður vonandi voða gaman hja okkur Jóa í Svíþjóð við ætlum að versal og slappa af í 5 daga :)
Vona bara að það verði gott veður ..



Ein pæling afhverju er ekki hægt að kjósa í gegnum heimabankann sinn ?

Newer Posts Older Posts Home