Það er búið að vera annsi rólegt undanfarið en þetta er vonandi allt að koma, ég er að klára pungaprófið 10.feb vonandi ;)
Við Díma ætlum að fara á fyrstu BHSÍ æfinguna okkar á sunnudaginn það verður rosa spennandi ætlum að mæta með bróðir hennar honum Jazz.

Er núna að fylgjast með borgarstjórnar fundinum það er allt að springa þar, þetta er eins og sápuópera :)mjög spennandi.

Við Jói erum að fara í leikhús á morgun á Viltu finna milljón, svo ætla ég upp á skaga um helgina að láta raka Dímu annars er ekkert plan þannig að janúar hefur verið alveg rosalega rólegur.

Þá er 2008 mætt á svæðið og ég hef það á tilfinninguni að þetta eigi bara eftir að verða mjög gott ár. Það er ekkert plan reyndar komið fyrir þetta ár en pælingin er að chilla bara innanlands og skella sér svo kannski í skóla í haust ef ég finn eitthvað sem ég vill læra.

En ég ætlaði að renna svona aðeins yfir árið 2007 :)

Janúar: Ég byrjaði árið á því að vopna mig upp :P fékk mér þessa líku sætu Haglabyssu sem hefur reyndar ekki drepið neitt ennþá en það er allt í vinnslu.

Febrúar: Pöntuðum við fer til DK gott að vera tímanlega í þessu, ég prufaði líka að æfa skotfimi og skaut úr fyrsta skiptið á ævinni úr skammbyssu. Ég eyddi líka stórum hluta af febrúar veik :(

Mars: Fékk ég nýja vinnu og byrjaði þar 16.mars stuttu eftir það fór ég svo í aðgerð, þar sem ég greyndist með legslímuflakk, sem betur fer er það allt í góðum málum í dag.

Apríl: KR urðu Íslandsmeistarar í körfu og flugmiðarnir fyrir jólafríinu mættu í hús. 10 ár voru liðin frá því að ég fékk fyrsta hundinn minn og Jói varð 23 ára :)

Maí: Við skelltum okkur til Svíþjóðar með Obbu systir Jóa sem hafði komist í U-16 landsliðið í körfu, Heitur pottur var keyptur í Grenibyggðina og við Jói tókum smá hreyfingar æði.

Júní: Við fórum norður í veiðiferð, setti í einn lax en missti hann. Fékk nýtt Tempur rúm og svefninn hefur aldrei verið betri :)

Júlí: Ég gerðist blondína :) Fórum til Danmerkur í 3.vikur í alveg geggjað frí.

Ágúst: Ég fór í Rafting niður Jökulsá Austari og fékk mikið hlaupaæði dreyf mest 5 km og Jói gaf mér GPS hlauapúr í afmælisgjöf.

September: Skelltum okkur í smá ferðalag norður, ég fór líka á fyrsta landsleikinn minn Ísland-Spánn. Ég varð 23 og það var haldið upp á það með því að bjóða mér í humarhúsið namm namm

Október: Mamma varð fimmtug, við fórum á prjónanámskeið og ég kláraði lopapeysuna hennar Steffy sem hefur verið á prjónunum í 4 ár. Díma fæddist líka í lok okt.

Nóvember: Fór á reunion hjá barna skólanum, Byrjaði á námskeiði hjá KMS við kvíðanum sem hefur hjálpað mikið :)

Desember: Ég byrjaði í fjarnámi er að taka skipstjórnar réttindi(pungapróf) Fórum til Austurríkis í viku um Jólin á skíði, Jói bað mig um að giftast sér :) og við fengum Dímu litla krúttboltan okkar.

2007 var bara helvíti gott :P


Það ríkir sko mikil gleði á heimilinu núna Díma er komin heim :)

Við erum komin til DK eftir mikið strögl í Germany við ömurlegan karl í check-ininu.
En það gékk allt að lokum, nema að það er spurning hvort að Arndís komist heim :P
segi svona en hún er á "Stand by" en þeir sögðu samt að hún kæmist heim.
Við verðum væntanlega að lenda á Íslandi kl 2 í nótt.
Annars erum við bara að hanga á flugvellinum, og spila.

Sé ykkur heima á klakanum ;)




Jæja þá er komið að því að pilla sér heim eftir frábæra viku hérna í Austurríki.
Leggjum reyndar ekki af stað fyrr en á morgun og verðum að lenda í kefló kl hálf 11.
Þetta er búið að vega mjög fínt og ég er búin að skemmta mér konunglega á snowbike ekki jafn vel á bretti :P enda datt ég frekar ill á því í lok fyrsta dags og hef bara geta sofið á annari hliðinni eftir það :P

Við erum búin að vera dugleg að skauta líka en það er alveg nýtt fyrir Jóa og honum finnst alveg geggjað gaman að skauta.

Svo er bara 1 dagur í að við náum í Dímu :D gleði gleði og ég held áfram í fríi er í fríi til 14.jan :D

Jæja við sjáumst öll hress og kát á íslandi :D

Kveðja,
DC og JP




Við Jói áttum tveggja ára afmæli á Jóladag, og haldiði ekki bara að kallinn hafi skellt sér á skeljarnar og beðið mig um að giftast sér :D
Auðvitað sagði ég JÁ !!!

Fengum okkur þessar flottu hringa í Jón og Óskari áður en við fórum út. Gull og hvíta gull passar við allt ;)

Annars er allt gott að frétta brilljant veður og rosa nice..
Og maturinn er æði ég á eftir að koma 100 kg til baka, ekki veitir af :)

Við komumst loks á áfangastað eftir 15 tíma ferðalag, fyrst til DK svo til Munich og svo keyrðum við til Austurríkis, úff..
Hótelið er æði og mér finnst eins og við séum alltaf að borða :P það er 5 rétta á kvöldin og svo hlaðborð á morgnana í hádeginu og síðdegis.
Við fórum að skíða í gær á Snowbike og fyrir þá sem ekki vita hvað það er ýtið hérna
Rosa fjör vorum á þessu í 5 tíma í gær, eftir það tókum við því bara rólega í spainu og syntum nokkrar ferðir í lauginn.
Í dag er það svo bara slökun fór í plokkun og litun og er svo að fara í nudd kl 11, eftir það ætlum við í göngutúr í húsið þar sem o holy night var samið.
Svo er gala dinner kl hálf 7.
á morgun er það svo bretti til 1 og rómantísk sleðaferð eftir það.

Well nóg í bili

Gleðilega hátíð ...

Við fórum upp á Akranes áðan að ganga frá kaupunum á Dímu þannig að ég og Jói erum offical eigendur af Bifrastar Lucky Star (Dímu).
Þvílík lukka fáum hana svo afhenta 31.des eftir að við komum heim frá útlandinu :)
Þetta er endalaus gleði :)

Jæja þá eru bara 3 dagar í að við förum til Austurríkis.
Þeir sem halda að ég hafi það eitthvað slæmt í Austurríki ættu að skoða þetta

Newer Posts Older Posts Home