Fyrir ykkur sem þekkið ekki dúlluna mína þá er hún stjarnan í miðjunni :)
fimmta talið frá vinstri.
Þeir eru allir svo sætir. Ef ykkur langar í svona hund þá held ég að það séu ennþá nokkrir eftir :)
Annars er ég að fara heimsækja þá á eftir hlakkar endalaust til :D

Loksins loksins er ég búin á þessu blessaða prjónanámskeiði.
Ég lærði alveg þónokkuð af nýjum hlutum og er að klára peysu núna sem ég gerði, hún átti að vera í medium en ég gerði smá mistök og hún varð óvart large það verður gaman að sjá hvernig hún kemur út.

Annars er ég ekki að vinna á morgun er að fara á annað námskeið :P
Ég er að fara taka pungprófið þannig að þegar þið farið með mér til útlanda þá get ég leigt bát handa okkur og verið da captain ;)

Það verður nú spennandi

Við Jói fórum saman að versla í gær handa Dímu keyptum bílabúr, teppi, dót og ólar.
En ekkert í BLEIKU nei ég mátti ekki kaupa neitt í bleiku en nota bene þá mátti ég kaupa skærgult teppi :P já svona er Jói furðurlegur.




Ég er að passa tvíburana Alex og París, voða stutt reyndar núna bara 4 daga.
Við ákváðum að skella okkur í Cavalier gönguna, það var rosa fjör nema að Alex týndist tvisvar en ekkert alvarlega :P
Hann kom alltaf til baka reyndar með smá hjálp í seinna skiptið haha

Annars er ekkert merkilegt að frétta fer að styttast í það að við förum að fara út.
Svo eru bara 29 dagar í að ég fá litla gullmolan heim, hún er sannur gullmoli enda gylt á litinn :P



Jæja fannst vera komin tími á að blogga um þetta :)
En fyrir þá sem ekki vita þá erum við Jói búin að festa okkur hund, Standard Poodle tík sem heitir því fallega nafni Díma.
Hún er fædd 31.okt og við fáum hana heim 31.des daginn eftir að við komum heim frá Austurríki. Ég myndi taka hana fyrr en við komum ekki heim fyrr en um miðnætti 30.des :(
Heimasíðan hjá ræktandanum er www.standardpoodle.tk eða www.dyraland.is/dyr/54081
Hún er þessi með rauða bandið.

Kveðja,
Stoltu foreldrarnir :D


You like? :p



Þú fellur fyrir prinsum.





Sé karlkynið flokkað í prinsa, froska, proska og frinsa er ljóst að þú laðast að kóngi dýraríkisins, prinsinum. Þráðbeinar, hvítar tennur hans skína jafnskært og gljáfægð kórónan og fáir geta staðist íþróttamannslegan vöxt hans. En ekki er allt gull sem glóir, oft er flagð undir fögru skinni, dæmdu ekki bókina eftir kápunni (allt er þegar þrennt er).




Prinsinn er vissulega sjarmör. Hann gleymir ekki afmælisdeginum þínum, brúðkaupsdeginum eða jólagjöfinni. Þegar maður er í för með prinsinum þarf ekki að hafa áhyggjur af því að hurð fletji út á manni andlitið eins og þegar farið er út með froski - prinsinn heldur dyrunum opnum eins og sönnum herramanni ber að gera. Auk þess skilur prinsinn aldrei eftir sig skítuga táfýlusokka á stofugólfinu. Þvert á móti. Hann er lipur með kústinn og veigrar sér ekki við heimilisstörfum. Hann á það meira að segja til að hrista fram úr erminni heimatilbúna, þriggja rétta máltíð - án þess að blása úr nös.




En því miður er prinsinn mjög meðvitaður um eigið ágæti. Ekki láta það koma þér á óvart þótt aðgangur þinn að speglinum minnki ákveðir þú að eyða lífinu með prinsi. Prinsinn á það nefnilega til að standa löngum stundum fyrir framan hann, hnykla vöðvana og syngja lagið "I'm too sexy" með Right Said Fred: "I'm too sexy for my shirt, too sexy for my shirt. So sexy it hurts." Hárþurrkuna og hársléttarann þinn munt þú ekki lengur fá að hafa út af fyrir þig og ekki láta þér bregða þegar andlitskremið þitt er skyndilega búið. Prinsinn þarf jú að viðhalda fegurð sinni og æsku. Síðast en ekki síst skaltu búa þig undir að vera ávallt í öðru sæti í lífi prinsins, því skotnastur er hann í sjálfum sér. (Froskurinn hljómar ekki sem svo slæmur kostur núna!)



Fellur þú fyrir prinsum eða froskum?

Cheerios með vatni er ekki gott...

Ég er semsagt með smá tilraun í gangi, ég er búin að vera svo slæm í maganum og læknirinn minn heldur að ég sé með glútein óþol. Þannig að ég ákvað að prufa að sleppa glúteini og taka bara mjólkur vörur út í leiðinni :D
Þannig að ég veit ekkert hvað ég á að borða en ég er betri í mallanum..

Enda er ég búin að léttast um 12 kg og ég var ekki einu sinni í megrun.

En ég mæli ekki með því að sleppa mjólk með cheeriosinu, það er bara vont :(


Jeff Dunham er nýja uppáhaldið mitt og ég var bara að fatta hann í síðustu viku :D
Þannig að ég vildi bara deila þessari snilld með ykkur og benda á uppistandið hans Arguing with myself þetta er snilld.
Svo er smá sketch hérna með Achmed the dead terrorist.

Það eru vonandi miklar breytingar framundan :D
Þetta er allt á réttri leið...

Ég veit ekki alveg hvernig breytingar en vonandi rosa góðar breytingar, sem bæta líf mitt og þeirra sem þurfa að umgangast mig og þola :P

Annars er ekkert merkilegt að frétta, ekki nema að alllt virðist vera smella saman og ég er rosa bjartsýn á framtíðina.

Newer Posts Older Posts Home