Júlí

Ég held að ég hafi bara misst af megninu af Júlí afþví að ég er búin að vera sofandi :S

Frændi hans jóa var skírður í gær Sveinbjörn Daði :)
Við gáfum honum ungbarnanudds námskeið í skírnargjöf.

Nýjustu heilsufréttir frá mér eru þær að mér líður miklu betur í ristlinum og er almennt mun hressari í þeim pakkanum
En ég var að fá nýja greiningu í morgun og er ég núna líka með Sjálfsofnæmis lifrabólgu
og þarf ég þá að taka fleiri lyf og fara væntanlega aftur á stera í 3-4 mánuði.
Mér finnst eins og ég hafi unnið í sjúkdóma lottóinu :) alltaf að fá eitthvað nýtt hehe

Þannig að ég á bara að taka því rólega þangað til að ég hitti lækninn minn 10. ágúst

Fiatinn er kominn í gott lag og fer ég líklega með hann í skoðun á morgun ef allt gengur eftir :)
Þetta er annars mjög þægilegur bíll gott að keyra hann og hendast á honum út um allt.
Helena tók meira að segja smá rúnt með mér á honum um daginn, hún var reyndar með hauspoka :P

Svo er það bara tvöföld hundasýning eftir minna en mánuð :) 22-23 ágúst.

0 Comments:

Post a Comment



Newer Post Older Post Home