Hreinlæti

Þá er þetta komið á hreint. Við Jói erum dugleg að taka til en og þetta er stórt EN við erum bara svo miklu duglegri að skíta út hehe..
Ég þreif allt á föstudaginn og það sést ekki í dag 3 dögum seinna. Við erum nú bara tvö, tvö og hálf ef við teljum Dímu með, sem á alveg sinn skerf af mosa sem hún sér um að bera inn..

Ég skil þetta ekki við erum líka alltaf að taka okkur á og reyna að ganga betur um, en það kemur með auknum þroska..

Annars er allt bara brilljant að frétta ég byrjaði í versluninni í dag, bara gleði..
Ég fór í krabbó skoðun í dag og fæ að vita út úr henni eftir tvær vikur. Núna er þetta bara win/win staða því að ef ég þarf að fara í aðgerð þá er hægt að laga ör sem ég fékk eftir síðustu aðgerð sem er að gera mig gráhærða og ef ég þarf ekki að fara í aðgerð þá er það bara frábært.
Maður þarf að vera bjartsýnn ég get ekki tapað :)

1 Comment:

  1. Anonymous said...
    Hæ skvís
    Flottur nýji bíllinn þinn
    Þú verður samt að fara að passa þig Pétur er að fá æfingarleyfi hehe
    Vonandi kemur allt flott úr krabbó
    kveðja úr próflestrinum og sólinni fyrir norðan

Post a Comment



Newer Post Older Post Home